Áskriftarskilmálar Alterna
Skilmálar Alterna
Við hvetjum viðskiptavini Alterna að kynna sér neðangreinda skilmála. Slíkt kemur í veg fyrir misskilning og stuðlar að greiðum og góðum samskiptum í framtíðinni. Eftirfarandi skilmálar gilda um GSM áskrift hjá Alterna Tel ehf. Og er bæði áskrifendum og öðrum notendum hennar skylt að hlíta þessum skilmálum.
Skilmálar þessir gilda um farsímaþjónustu Alterna. Skilmálar þessir geta tekið breytingum. Allar breytingar verða kynntar með minnst 30 daga fyrirvara á www.alterna.is. Sá sem óskar eftir fjarskiptaþjónustu Alterna skuldbindur sig við undirritun eða staðfestingu samnings um fjarskiptaþjónstu til að hlíta þeim skilmálum sem Alterna setur um notkun þjónustunnar.
Almennir skilmálar
Símkort frá Alterna eru eingöngu ætluð til notkunar í farsíma.
Alterna ber ekki ábyrgð á tjóni, hvorki beinu né óbeinu, sem viðskiptavinur kann að verða fyrir vegna niðritíma þjónustunnar.
Alterna hefur ekki eftirlit með eða ber ábyrgð á innihaldi efnis sem sótt er á Internetið. Öll notkun, framleiðsla og vinnsla með efni sem fengið er af Internetinu er á ábyrgð viðskiptavinar.
Ef í ljós kemur að notkun felur í sér misnotkun á búnaði eða þjónustu Alterna áskilur Alterna sér rétt til að synja viðskiptavini um þjónustu, ýmist um stundarsakir eða til frambúðar.
Brot á skilmálum Alterna getur valdið tafarlausri lokun á þjónustu.
Við undirritun samnings um símaþjónustu fær áskrifandi úthlutað símanúmeri nema ef um númeraflutning er að ræða og þá heldur áskrifandi áður úthlutuð númeri. Áskrifandi þarf að óska sérstaklega eftir númeraleynd, læsingum, og annarri aukaþjónustu sem í boði er.
Viðskiptavinir sem velja að flytja símanúmerið sitt frá öðru símafyrirtæki til Alterna verða að vera rétthafar þess símanúmers sem flutt er.
Viðskiptavinir sem velja að flytja símanúmer sitt frá Alterna til annars farsímafyrirtækis verða að gæta þess að ekki sé skuld á símanúmerinu. Fyrirtæki eða einstaklingur sem gert hefur þjónustusamning við Alterna til ákveðins tíma getur ekki flutt símanúmer frá Alterna á samningstímanum.
Áskrifandi veitir Alterna með undirsskrift eða staðfestingu á samningum um fjarskiptaþjónustu umboð til að segja upp fjarskiptaþjónustu hjá öðrum þjónustuveitum.
Númeraflutningur fer að öllu leyti eftir reglum Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 949/2008 um númera- og þjónustuflutning. Venjulegur afgreiðslutími á þjónustubeiðnum, þ.m.t. beiðnum um nýjar tengingar, rétthafabreytingar, viðtökur númera og aðra þjónustuþætti er ekki lengri en 14 dagar frá því að beiðni kom fram, nema óviðráðanleg atvik hamli framkvæmd.
0 kr. Innan kerfis felur í sér 1000 mín og 500 sms
Viðskiptavinur Alterna er sá sem skráður er greiðandi þjónustunnar. Viðskiptavinur er ábyrgur fyrir greiðslum og allri notkun símanúmersins. Hjá Alterna er greiðandi símanúmersins jafnframt rétthafi númersins.
Viðskiptavinur getur valið að skrá annan aðila sem notanda þjónustunnar. Slík skráning felur ekki í sér framsal á réttindum og skyldum samkvæmt samningnum.
Alterna ber ekki ábyrgð á því þótt fjarskiptasamband rofni um stund. Alterna mun þó ávallt leitast við að koma á fjarskiptasambandi að nýju og viðhalda gæðum þjónustunnar. Verði verulegur dráttur af hálfu Alterna á viðgerð getur áskrifandi krafist endurgreiðslu á mánaðargjaldi í hlutfalli við þann tíma sem samband er rofið. Alterna ábyrgist ekki tjón sem rekja má til sambandsleysis, rofs á fjarskiptum eða annarra truflana sem kunna verða á rekstri fjarskiptanetsins, hvort sem slíkt má rekja til línubilana, bilana í stöðvum eða annarra ástæðna.
Ef viðskiptavinur glatar símkorti er mikilvægt að hann tilkynni slíkt tafarlaust til Alterna. Hægt er að tilkynna um týnt/glatað símkort hjá þjónustuveri Alterna í síma 415-3000.
Tilkynningar frá Alterna til viðskiptavinar eru sendar með tölvupósti á það netfang sem viðskiptavinur hefur tilgreint eða með sms skeyti á skráð númer.
Óski viðskiptavinur eftir því að gera breytingar á þjónustunni ber honum að tilkynna Alterna um þær skriflega með því að senda tölvupóst á netfangið alterna@alterna.is eða með því að tilkynna breytingar í verslun Alterna.
Alterna áskilur sér rétt til að senda viðskiptavini markpóst og fréttabréf með tölvupósti. Viðskiptavinur getur þó afþakkað þjónustuna.
Alterna hefur ekki eftirlit með og ber ekki ábyrgð á innihaldi skilaboða sem viðskiptavinur móttekur eða sendir.
Númerabirting og númeraleynd/leyninúmer. Viðskiptavinur ber sjálfur ábyrgð á því að símtækið sé rétt stillt fyrir númerabirtingu og númeraleynd. Ekki er um númeraleynd að ræða þegar hringt er í Neyðarlínuna, 112.
Greiðsluskilmálar
Gjald fyrir fjarskiptaþjónustu, sem og aðra þjónustu Alterna, er samkvæmt verðskrá sem Alterna gefur út og er aðgengileg á vefsíðu Alterna, www.alterna.is.
Gildandi verðskrá Alterna má nálgast á heimasíðu félagsins, www.Alterna.is. Upplýsingar um verðskrá má einnig fá hjá þjónustuveri Alterna í síma 415 3000.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á greiðslum til Alterna vegna notkunar sem á sér stað á fjarskiptaþjónustu eða búnaði, óháð því hvort viðskiptavinur hefur heimilað notkun eða ekki. Glati viðskiptavinur símkorti er mikilvægt að Alterna sé tilkynnt um slíkt tafarlaust, enda ber viðskiptavinur ábyrgð á allri notkun símkortsins þar til tilkynning á sér stað.
Ef áskrifandi óskar eftir að fá sendann greiðsluseðil bætist við 250 kr seðilgjald, en ef krafan er aðeins sen í birtingakerfi bankana bætist við 129 kr kröfugjald. Enginn auka kostnaður bætist við ef greitt er með kreditkorti.
Alterna getur ákveðið að gjaldfella reikning viðskiptavinar, sem ekki er kominn á eindaga, sé um notkun að ræða sem er yfir viðmiðunarmörkum, 50.000 kr.
Einungis er hægt að greiðsludreifa tæki ef greitt er með kreditkorti. Allir greiðslusamningar eru framseldir til Borgunar hf. Notkun viðskiptavinar er jafnframt gjaldfærð á kreditkort.
Viðskiptavini ber að fylgjast með reikningi sínum og skal hann láta Alterna vita tafarlaust ef hann telur um rangfærslur að ræða. Tilkynni viðskiptavinur ekki um rangar upplýsingar eða hugsanlegar rangfærslur fyrir eindaga hvers reiknings telst reikningur samþykktur.
Reikningstímabil miðast við almanaksmánuð og er útgáfudagur og gjalddagi 21. hvers mánaðar og eindagi er 3. næsta mánaðar eftir gjalddaga. Sé reikningur ekki greiddur á eindaga skal áskrifandi greiða dráttarvexti, eins og þeir eru ákveðnir samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá og með gjalddaga til greiðsludags, auk þess sem gjald vegna innheimtuviðvörunar leggst á kröfu við útsendingu 2 dögum eftir eindaga.
Alterna lokar fyrir úthringingar hafi reikningur ekki verið greiddur 30 dögum eftir útgáfu reiknings. Alterna áskilur sér rétt til að senda reikninga til þriðja aðila til frekari innheimtu. Ekki er innheimt fyrir símtöl í 112, Neyðarlínuna, þrátt fyrir að lokað hafi verið fyrir úthringingar.
Alterna er heimilt að innheimta gjald fyrir lokun fjarskiptaþjónustu, auk þess sem Alterna er heimilt að innheimta gjald fyrir útskrift innheimtuseðla og afhendingu kröfunnar til innheimtufyrirtækis. Þegar krafa hefur verið send frá Alterna til innheimtufyrirtækis ber viðskiptavini að greiða kröfu hjá viðkomandi innheimtufyrirtæki. Alterna getur synjað viðskiptavini um frekari þjónustu vegna vanskila.
Alterna áskilur sér rétt til að breyta þeim fjárhæðum sem tilgreindar eru í skilmálum í samræmi við þróun vísitölu. Verðskrá fyrir farsímanotkun erlendis og símtöl til útlanda er birt í íslenskum krónum. Alterna áskilur sér einnig rétt til að eyða gögnum viðskiptavinar ef vanskil hans hafa varað samfellt í 3 mánuði.
Óski viðskiptavinur eftir því að framselja samning sinn við Alterna til þriðja aðila ber honum að senda skriflega beiðni þess efnis til Alterna. Nýr greiðandi skuldbindur sig til að greiða fyrir alla notkun sem hefur átt sér stað á númerinu og enn er ógreidd, þegar greiðandabreyting er gerð.
Lánshæfismat
Alterna getur við frágang þjónustusamnings eða síðar gert mat á lánshæfi viðskiptavinar. Er Alterna heimilt í þeim tilgangi að afla upplýsinga hjá óháðum aðilum á sviði lánshæfismats eða úr gagnagrunnum um vanskil. Alterna áskilur sér rétt til að synja aðila um fjarskiptaþjónustu sé hann á vanskilaskrá.
Netnotkun
Netnotkun gjaldfærist ekki samstundis, 5-10 mínútur geta liðið frá því að notkun á sér stað þar til hún er gjaldfærð. Lokað er fyrir netnotkun þegar inneign fer niður fyrir 50kr, og opnað þegar inneign nær 50kr eða hærra. Samkvæmt verðskrá er lágmarksgjald fyrir netnotkun á dag, 10kr (í því er innifalið 2MB), en vegna tafar á gjaldfærslu netnotkunar getur netnotkun rétt fyrir miðnætti gjaldfærst næsta dag -- þá mun daggjald næsta dags gjaldfærast. Daggjald er aldrei gjaldfært tvisvar sama daginn.
Uppsögn
Báðir aðilar geta sagt upp þjónustusamningi, svo fremi að ekki séu í gildi sérákvæði um uppsögn í samningi aðila. Uppsögn skal vera skrifleg og á þar til gerðu formi sem hægt er að fá hjá Alterna og skal hún gerð með eins mánaðar fyrirvara hið minnsta og miðast uppsögn við mánaðamót, nema kveðið sé á um annað í samningi aðila.
Ef viðskiptavinur hefur greiðsludreift símtæki getur hann ýmist greitt eftirstöðvar eða haldið óbreyttum afborgunum ef til uppsagnar þjónustusamnings kemur. Möguleikar til að halda óbreyttum afborgunum miðast þó við að viðskiptavinur hafi verið með virkt númer hjá Alterna í að minnsta kosti 30 daga.
Viðskiptavinur fær ekki frelsisinneign endurgreidda við uppsögn.
Viðskiptavinur hefur eins mánaða uppsagnarfrest áður en breytingar á skilmálum taka gildi nema samið hafi verið um annað (fyrirtæki).
Sé um samning að ræða sem kveður á um binditíma, þarf viðskiptavinur að greiða upp það sem eftir er af samningstímanum, óski hann að segja samningi upp áður en þjónustusamningi er lokið og greiða riftunargjald skv. samningi.
Vanskil viðskiptavinar geta leitt til gjaldfellingar samnings hans við Alterna.
Lokunarréttur
Ef upp koma verulegar vanefndir viðskiptavinar á skuldbindingum samkvæmt samningi er Alterna heimilt að rjúfa símasamband viðskiptavinar eða takmarka möguleika viðskiptavinarins til að notfæra sér þjónustuna.
Gæða- og þjónustustig
Viðskiptavinur getur ekki krafið Alterna um bætur vegna tjóns, beins eða óbeins, vegna sambandsleysis, rofa á fjarskiptum eða annarra truflana sem kunna að verða á rekstri fjarskiptanetsins hvort sem slíkt má rekja til línubilana, bilana í stöðvum eða annarra ástæðna, sbr. 40. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti.
Meðhöndlun persónuupplýsinga
Ítrasta öryggis er gætt í meðferð persónuupplýsinga.
Með samningi aðila veitir viðskiptavinur Alterna heimild til að safna saman og vinna úr persónuupplýsingum í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Viðskiptaskilmálar
Hið selda er eign seljanda þar til tækið hefur verið greitt að fullu. Raðgreiðslusamningar, reikningsviðskipti eða önnur lánaform afnema ekki eignarrétt seljanda fyrr en full greiðsla hefur borist.
Hægt er að skila vörunni innan 14 daga frá því hún var keypt, velja nýja eða fá vöruna endurgreidda, sé hún í upprunalegum umbúðum og upprunalegu ástandi.
Eftir þann tíma getur viðskiptavinur komið og skipt vöru eða fengið inneignarnótu að sömu upphæð og greitt var fyrir vöruna. Sé kaupsamningi rift verður sá afsláttur/inneign sem viðskiptavinur hefur fengið, dreginn frá kaupverði tækisins.
Ábyrgðarskilmálar
Tækjum fylgir tveggja ára ábyrgð gegn framvísun sölunótu. Ábyrgð fellur niður ef rekja má bilun til rangrar eða slæmrar meðferðar tækisins.
Ágreiningur og lögsaga
Um samning aðila gilda íslensk lög. Ágreiningsmál vegna samningsaðila skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Með undirskrift sinni á áskriftarsamning eða með því að hefja notkun á SIM korti frá Alterna skuldbindur áskrifandi sig til að hlíta þeim skilmálum sem Alterna setur. Við gerðs nýs áskriftarsamnings fellur úr gildi eldri samningur sé hann til staðar.
Frelsi
Almenn inneign
Virk inneign - 0-6 mánuðir
Eftir að Frelsið hefur verið hlaðið er innstæðan virk í 6 mánuði. Frelsisnotandi getur á því tímabili mótekið símtöl þó engin inneign sé eftir.
Óvirk inneign - 6-9 mánuðir
Ef ekki hefur verið fyllt a.m.k. 500 kr. á Frelsið í 6 mánuði er lokað fyrir hringingar frá númerinu. Frelsisnotandi getur þó móttekið símtöl í allt að 3 mánuði.
Ef fyllt er á Frelsið innan 3ja mánaða frá því lokað var fyrir úthringingar er hægt að endurheimta inneignina sem eftir var og opna fyrir úthringingar.
Töpuð inneign - 9-12 mánuðir
Ef ekki er fyllt á Frelsið innan 3ja mánaða frá því lokað var fyrir úthringingar tapast inneignin sem eftir var á Frelsinu og lokað er fyrir alla notkun.
Hægt er að virkja Frelsið með því að fylla á það innan 3ja mánaða frá því lokað var fyrir alla notkun en eldri inneign er fyrnd. Ef ekki er fyllt á Frelsið innan 3ja mánaða frá því lokað var fyrir alla notkun áskilur Alterna sér þann rétt að endurheimta símanúmerið og endurúthluta því.
Verði til skuld hjá viðskiptavini í frelsisþjónustu vegna notkunar erlendis er Alterna heimilt að krefjast greiðslu eftir á með því að skuldajafna frelsisinneign viðskiptavinar á móti skuldinni. Ef inneignin dugar ekki, er sendur greiðsluseðill fyrir því sem upp á vantar þar til skuldin er að fullu greidd.
Frelsisáfyllingar eru eingöngu ætlaðar til notkunar á fjarskiptaþjónustu.
Áskriftarskilmálar þessir gilda frá 1. apríl 2012


