Leiðbeiningar
Nýtt númer
Ef þú hefur skráð þig fyrir nýju númeri hjá Alterna seturðu einfaldlega Alterna SIM-kortið í símann og slærð inn PIN-númerið sem fylgir kortinu.
Númeraflutningur
Ef þú hefur flutt númerið þitt til Alterna frá öðru símafyrirtæki heldurðu áfram að nota símann þinn hjá núverandi fyrirtæki þar til þér berst SMS þess efnis að númerflutningur sér afstaðinn. Þá seturðu Alterna SIM-kortið í símann.
Internetstillingar
Til að komast á netið þarf að skrá inn svokallaðan APN okkar í símann þinn. Þessa stillingu er oftast að finna undir Internet Connection í valmynd símans. Þar stimplarðu inn þessa APN stillingu: gprs.imc.is
Viljirðu aðstoð við að setja upp Internetið á símanum þínum skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur í síma 415-3000. Þú getur líka komið í heimsókn í verslun okkar við Borgartún 31.


