Spurt og svarað
Hvernig skrái ég mig í þjónustu hjá Alterna?
Þú skráir þig hér á heimasíðunni okkar eða hringir í okkur í 415-3000.
Get ég haldið núverandi símanúmerinu mínu þegar ég flyt mig yfir til Alterna?
Já, þú getur haldið númerinu þínu þótt þú skiptir um símafyrirtæki. Við sendum þér nýtt SIM-kort innan 3ja daga frá skráningu á netinu en samdægurs ef þú kemur í verslun okkar. Þú færð SMS í símann þinn þegar tími er kominn til að skipta um SIM-kort og ert færð/ur yfir til Alterna.
Er Alterna um allt land?
Já, Alterna er um allt land. Við erum með aðgang að stærsta dreifikerfi landsins.
Hvernig er dreifikerfi Alterna?
Alterna rekur sína eigin símstöð og dreifikerfi en er þar að auki með reikisamning við Símann og Vodafone um not á samnýtingu á fjarskiptamöstrum út um land allt. Þetta þýðir að þjónustusvæðið er að minnsta kosti jafn stórt og þjónustusvæði Símans og Vodafone.
Hvernig greiði ég fyrir símtöl í útlöndum?
Ef þú ert í áskrift bætist notkunin við reikninginn þinn næstu mánaðarmót. Ef þú ert í frelsi þá þarftu að skrá þig í áskrift hjá okkur til þess að geta hringt í útlöndum. Þú getur nálgast eyðublað í verslun okkar.
Þarf ég nýtt símkort og hvernig nálgast ég það?
Það er ekki hægt að nota SIM-kort frá öðru fyrirtæki eftir að númeraflutningur hefur átt sér stað. Þess vegna færðu nýtt SIM-kort hjá Alterna. Þú færð kort í pósti eða kemur til okkar og sækir það í verslun okkar á annari hæð Borgartúni 28.
Hvað tekur langan tíma að flytja númer til Alterna?
Þú ræður því. Þú velur tímasetninguna og færð sent SMS í símann þinn þegar komið er að því að skipta um SIM-kort.
Get ég fengið Gullnúmer hjá Alterna?
Gullnúmer eru sérstök símanúmer sem eru sérvalin af okkur. Þau hafa endingu eins og t.d. 650-1000 og eru sérstaklega merkt sem Gullnúmer. Það kostar kr 3.000.- að fá slíkt símanúmer hjá Alterna. Ef þú velur slíkt númer í skráningarferlinu bætist sú upphæð við fyrsta reikninginn þinn.
Hvernig get ég greitt reikninginn minn?
Með því að skrá þig í áskrift hjá Alterna er mögulegt að fá sendan mánaðarlegan reikning eða láta gjaldfæra af kreditkortinu þínu fyrir notkuninni í lok hvers mánaðar.
Hvar get ég fyllt á Frelsið mitt?
Þú getur fyllt á Frelsið á heimasíðunni okkar, hringt í okkur í 415-3000 og við fyllum á símann fyrir þig. Einnig er hægt að koma í verslun okkar og kaupa inneign.
Hvaða inneignaupphæðir eru í boði?
Frá 500 kr. og upp úr.
Er hægt að fá símtalslæsingu?
Já, allar símtalslæsingar eru í boði.
Eru þið með 3G?
Já við erum með 3G sem gerir fólki kleift að fara á netið í símanum - sækja tölvupóst og á almennt vefráp.
Eru þið með MMS?
Það er ekki í boði eins og er en verður komið innan skamms.
18 ára aldurstakmark?
Einungis lögráða einstaklingar geta komið í áskrift hjá Alterna. Fyrir þá sem eru undir 18 ára bjóðum við m.a. upp á Alterna Frelsi en við bendum á að notandi þjónustunnar þarf ekki að vera orðinn 18 ára heldur einungis sá sem er skráður greiðandi
Get ég notað gamla GSM símann minn hjá Alterna?
Já, símkort frá Alterna virka í alla GSM síma.
Hvað kostar að skipta yfir til Alterna?
Þú getur flutt gamla símanúmerið þitt yfir til Alterna þér að kostnaðarlausu. Einnig getur þú fengið nýtt Alterna númer þér að kostnaðarlausu nema ef um Gullnúmer er að ræða en þau kosta 3000 kr.
Getur beiðni um númeraflutning verið hafnað?
Almennt gerist það ekki. Hins vegar getur símafyrirtækið sem þú vilt flytja þig frá synjað þér um flutning hafirðu gert bindandi samning við fráfarandi símafyrirtæki.
Bjóðið þið upp á heimasíma og Internet?
Alterna bíður aðeins upp á GSM þjónustu.
Get ég hringt 0 kr innan kerfis ef ég er búinn með inneignina?
þú getur hringt 0 kr innan kerfis þrátt fyrir að inneignin sé búin.
Gildir 0 kr innan kerfis í útlöndum?
Nei, það gildir ekki erlendis þar sem erlendu símafélögin rukka ákveðið gjald fyrir þjónustuna.
Er alltaf 0 kr innan kerfis?
Já, það er alltaf 0 kr innan kerfis en takmarkast þó við 1000 mínútur og 500 SMS.
Af hverju er ekki ótakmörkuð notkun í 0kr innan kerfis?
Alterna setur hámark á notkun í 0 kr innan kerfis eingöngu til að koma í veg fyrir misnotkun á þjónustunni. 1000 mín og 500 SMS samsvarar verulegri notkun og dugar langflestum notendum.
Hvar get ég fylgst með notkun?
Innan skamms munum við opna þjónustusíðu fyrir viðskiptavini Alterna, þar verður hægt að fylgjast með notkun, skoða reikninga o.f.l. Þangað til er hægt að hringja í þjónustuver Alterna 415-3000 og fá upplýsingar um notkun. Einnig geta frelsis notendur hringt í númerið *120# til að fá upplýsingar um stöðu inneignar
Get ég sett upp talhólf?
Nei, ekki sem stendur. Sú þjónusta verður í boði innan skamms.
Hvað er PIN?
PIN stendur fyrir Personal Identification Number. Þegar þú kveikir á símanum biður hann um PIN-númer. Þetta er leyninúmer símkortsins og kemur í veg fyrir að hver sem er geti notað símkortið þitt. Þú færð þrjár tilraunir til að slá PIN-númerið rétt inn. Ef það mistekst læsist símkortið og þú verður að slá inn PUK-númerið til að opna fyrir það aftur.
Hvað er PUK?
PUK stendur fyrir Personal Unblocking Key og er notað ef að rangt PIN-númer hefur verið slegið inn oftar en þrisvar sinnum. Þá læsist SIM-kortið og þá þarf nota-PUK númerið til að opna það aftur.
Hvað ef ég gleymi PIN og PUK-númerinu?
Þú getur alltaf hringt í þjónustuver Alterna og fengið uppgefið PUK og PIN-númerið þitt. Athugaðu þó að ef þú hefur breytt PIN-númerinu þínu þá höfum við ekki upplýsingar um nýja PIN-númerið þitt.


